Ný stjórn var kjörin hjá knattspyrnudeild KR á aðalfundi fyrir helgi en það sem vakti mesta athygli er að þrjár konur komu nýjar inn í stjórnina.
Aðeins ein kona var í stjórninni fyrir, það var Margrét Hafsteinsdóttir sem hætti eftir tæpan áratug í stjórn.
Katrín Ómarsdóttir fyrrverandi landsliðskona Íslands kemur ný inn í stjórnina að þessu sinni og auk hennar þær Berglind Guðmundsdóttir og Valdís Arnórsdóttir. Því verða 3 af 8 stjórnarmeðlimum konur í þetta sinn en voru áður 1 af 9.
Í heildina eru það fjórir nýir stjórnarmeðlimir sem koma inn í stjórn KR en auk kvennana þriggja kemur Sindri Snær Jenssson fyrrverandi markvörður liðsins inn í stjórnina.
Stjórnin:
Páll Kristjánsson, formaður
Berglind Guðmundsdóttir
Einar Örn Jónsson
Indriði Sigurðsson
Katrín Ómarsdóttir
Ólafur Már Ólafsson
Sindri Snær Jensson
Valdís Arnórsdóttir