Einar Ottó fyrirliði Selfyssinga var mjög svekktur eftir 0-4 tap gegn sterku liði KA í kvöld. Selfyssingar sáu aldrei til sólar í leiknum og mættu illa til leiks.
„ Mér fannst planið okkar ganga ágætlega framan af en svo skora ég sjálfsmark sem er ekkert annað en einstaklingsmistök hjá mér. Uppúr því kemur síðan annað mark sem við getum lítið gert í, mjög vel gert hjá KA manninum sem skoraði úr aukaspyrnu, sem mér fannst reyndar ekki vera aukaspyrna."
Í þessu umtalaða aukaspyrnumarki var það Einar Ottó sem braut en skiptar skoðanir eru á því hvort það hafi verið aukaspyrna.
Selfyssingar fengu mikinn skell í síðustu umferð þegar liðið tapaði 5-0 fyrir Grindavík. Einhverjir hefðu haldið að það væri auðvelt að gíra sig upp í leik eftir svona mikinn skell.
„Jú, manni langar alltaf að spila fótbolta aftur eftir að hafa skitið svona á sig. Það var algjör skita ólíkt því í dag vorum við að mæta góðu liði."
Eftir úrslit kvöldsins er lið Selfyssinga einungis 1 stigi frá falli.
Viðtalið við Einar má sjá í heild sinni hér að ofan.






















