Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. mars 2023 20:29
Brynjar Ingi Erluson
Sextánda mark Toney - Lagleg afgreiðsla hjá March
Ivan Toney er að eiga stórkostlegt tímabil
Ivan Toney er að eiga stórkostlegt tímabil
Mynd: Getty Images
Brighton og Brentford eru bæði 1-0 yfir í hálfleik í ensku úrvalsdeildinni en Ivan Toney skoraði 16. mark sitt í deildinni á tímabilinu.

Brighton er 1-0 yfir gegn Crystal Palace á Amex-leikvanginum en eina markið gerði Solly March á 15. mínútu leiksins. Kaoru Mitoma kom með glæsilega stungusendingu inn fyrir á March sem skaut honum í fjærhornið.

Lagleg afgreiðsla hjá March og Brighton komið yfir.

Sjáðu markið hjá March

Þá er Brentford að vinna Southampton 1-0 á St. Mary's leikvanginum og var það enski framherjinn Ivan Toney sem skoraði með skemmtilegum flugskalla af stuttu færi.

Þetta var 16. mark Toney í deildinni á tímabilinu en það mark má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Toney
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner