Ásgeir Ingólfsson, fyrirliði Grindavíkur, mætti sínu uppeldisfélagi í kvöld. Haukar unnu 1-0 sigur gegn Grindavík í 2. umferð 1. deildarinnar en Grindvíkingar eru án stiga eftir tvo fyrstu leikina.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 0 Grindavík
„Það var virkilega gaman að koma hingað á gamla heimavöllinn. Ég veit það vel að þetta er vígi og það á að vera erfitt að koma hingað. Við erum með boltann allan leikinn en þeir fá tvö mjög góð færi," segir Ásgeir.
Björgvin Stefánsson skoraði eina mark leiksins. Grindavík fékk færi til að jafna úr víti. Óli Baldur Bjarnason fór á punktinn en víti hans var varið og Óli fékk svo rautt spjald í kjölfarið fyrir að fara of harkalega í markvörð Hauka þegar hann reyndi að hirða frákastið.
„Bjöggi klárar frábærlega í markinu sem hann skoraði. Við fáum svo þetta víti og í kjölfarið rautt spjald. Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei séð áður. Haukarnir vilja meina að hann hafi hoppað með báðar fætur á undan sér í markvörðinn en ég sá það ekki nægilega vel. Ég hefði sjálfur gefið gult á þetta."
„Svo rífa Haukarnir í hann (Óla) og allt sýður upp úr. Leikmaður númer 17 hjá þeim (Gunnlaugur Fannar Guðmundsson) var á gulu spjaldi og ég heyri dómarann segja að númer 17 hafi átt að fá gult spjald, en hann sleppir honum."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.






















