Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. mars 2023 23:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Sólon með fjögur í stórsigri Vængjanna
Úr leik Vængja Júpíters og Elliða árið 2020
Úr leik Vængja Júpíters og Elliða árið 2020
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Vængir Júpiters 6 - 2 Álafoss
1-0 Sólon Kolbeinn Ingason ('2 )
1-1 Reginald Owusu Afriyie ('8 )
2-1 Sólon Kolbeinn Ingason ('12 )
3-1 Sólon Kolbeinn Ingason ('20 )
4-1 Sólon Kolbeinn Ingason ('45 )
5-1 Aron Páll Símonarson ('57 )
5-2 Reginald Owusu Afriyie ('81 )
6-2 Aron Páll Símonarson ('89 )


Vængir Júpíters og Álafoss áttust við í riðli sex í C deild Lengjubikarsins í kvöld.

Vængirnir þurftu á sigri að halda til að halda í við Álftanes í baráttunni um að komast í umspilið fyrir undanúrslitin.

Sólon Kolbeinn Ingason lagði grunninn að sigri liðsins í kvöld með fjórum mörkum í fyrri hálfleik. Fyrsta markið kom strax á annarri mínútu en Reginald Owusu Afriyie jafnaði metin stuttu síðar.

Aron Páll Símonarson kom Vængjunum í 5-1 áður en Reginald skoraði aftur en Aron negldi síðan síðasta naglann í kistu Álafoss.


Lengjubikar karla - C-deild, riðill 6
Lið L U J T Mörk mun Stig
Athugasemdir
banner
banner
banner