Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lykilmaður framlengir við Ægi
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Cristofer Rolin, leikmaður Ægis, hefur gert eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið.

Rolin er 29 ára gamall og uppalinn á Spáni en hann á ættir sínar að rekja til Miðbaugs-Gíneu.

Hann er á leið í sitt þriðja tímabil með Ægi en hann átti stóran þátt í að koma liðinu upp í 2. deild árið 2021 og var svo áfram í lykilhlutverki á síðasta tímabili er liðið hafnaði í 3. sæti.

Ægismenn spila í Lengjudeildinni á komandi tímabili eftir að Kórdrengir fengu ekki þáttökuleyfi í deildinni.

Rolin hefur skorað 21 mark í 56 leikjum með Ægi .
Athugasemdir
banner
banner