Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   fim 16. júní 2016 22:22
Jóhann Ingi Hafþórsson
Annecy
EM svítan: Mario Gomez hækkaði meðal útlitið á liðinu
Hrafnhildur og Anna.
Hrafnhildur og Anna.
Mynd: Skjáskot
Anna Garðars, leikmaður Þróttar og Hrafnhildur Agnarsdóttir, markmaður KR voru sérfræðingar EM svítunnar í kvöld, þær fóru þá yfir leik Þýskalands og Póllands sem fram fór í kvöld en hann endaði 0-0.

„Seinni hálfleikurinn var aðeins tíðindameiri en fyrri hálfleikurinn en þetta var ekki skemmtilegasti leikurinn," sagði Anna.

Arkadiusz Milik fékk algjört dauðafæri í byrjun leiks en hann fékk boltann í nefið þegar hann reyndi að skalla boltann af stuttu færi.

„Ef ég væri Milik, myndi ég ekki sofa vel í nótt," sagði Hrafnhildur. Mario Gomez kom inná sem varamaður í seinni hálfleik og fór lítið fyrir honum.

„Eina sem hann gerði var að hækka meðal útlitið hjá liðinu," sagði Hrafnhildur um Gomez.

Hér að ofan má sjá innslagið.
Slapp
banner