Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 14:35
Elvar Geir Magnússon
Heimild: TM mótið 
FH vann TM mótið í Eyjum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
TM mótið í Eyjum hefur verið haldið árlega í Vestmannaeyjum frá árinu 1990. Á mótinu keppir 5. flokkur kvenna.

FH sigraði Gróttu í úrslitaleik TM-mótsins þetta árið.

Það var allt stál í stál í venjulegum leiktíma og staðan að honum loknum 0-0. FH kom sterkara inn í framlengingu og skoraði Elísabet Una Jakobsdóttir tvö mörk beint úr aukaspyrnum og því sigraði FH Gróttu 2-0.

Við viljum þakka öllum gestum móstins kærlega fyrir komuna og vonum að þeir fari heim á leið með góðar minningar," segir á heimasíðu mótsins.

Eyjólfur Garðarsson ljósmyndari var í Vestmannaeyjum og tók myndirnar sem fylgja þessari frétt.
Athugasemdir
banner
banner
banner