Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. mars 2020 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hörður með flestar heppnaðar sendingar
Hörður Björgvin Magnússon.
Hörður Björgvin Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon á flestar heppnaðar sendingar af öllum leikmönnum í rússnesku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Hörður hefur, í 20 leikjum, átt 1241 heppnaðar sendingar.

Í þessum 20 leikjum sem hann hefur spilað hefur Hörður skorað tvö mörk, en hann er hluti af þriggja manna varnarlínu CSKA.

Það er komið hlé í rússnesku úrvalsdeildinni út af kórónuveirunni og stefnt er á að byrja deildina aftur í apríl. CSKA er í fimmta sæti rússnesku deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner