Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. febrúar 2019 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Markalaust í báðum leikjum
Boltinn vildi ekki inn á Anfield.
Boltinn vildi ekki inn á Anfield.
Mynd: Getty Images
Úr leik Lyon og Barcelona.
Úr leik Lyon og Barcelona.
Mynd: Getty Images
Áhorfendur fengu ekki að sjá eitt einasta mark í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Liverpool og Bayern München mættust á Anfield og var Liverpool fyrirfram talið sigurstranglegri aðilinn enda er liðið mjög sterkt á sínum heimavelli.

Bayern fékk gott tækifæri til að komast yfir snemma leiks. Serge Gnabry, fyrrum leikmaður Arsenal, fasta sendingu fyrir sem fór af Joel Matip og stefndi í markið en Alisson var réttur maður á réttum stað.

Stuttu síðar gerðist Alisson næstum því sekur um stór mistök þegar hann var afar lengi að hugsa. Hann var alveg við það að missa boltann en náði að koma honum á Matip, sem missti hann reyndar líka. Bayern náði þó ekki að nýta tækifærið.

Liverpool fékk einnig sín færi. Sadio Mane fékk líklega besta færi leiksins eftir rúmar 30 mínútur þegar boltinn barst til hans í teignum, en skot hans var langt fram hjá.

Staðan var markalaus í hálfleik og í seinni hálfleik fór boltinn heldur ekkert í netið. Seinni hálfleikurinn var frekar bragðlaus, en heilt yfir var Liverpool hættulegri aðilinn. Til marks um það þá átti Bayern ekki eitt skot á markið í leiknum.

Það jákvæða sem Liverpool getur tekið úr leiknum er að liðið hélt hreinu án Virgil van Dijk. Það neikvæða er að það verður hægara sagt en gert að sækja úrslit á Allianz Arena. Þetta einvígi er galopið.


Það verður væntanlega rólegur þáttur í Meistaradeildarmörkunum í kvöld þar sem hinn leikurinn í kvöld endaði einnig með markalausu jafntefli. Lyon og Barcelona mættust í Frakklandi. Það verður erfitt verkefni fyrir Lyon að fara til Barcelona og reyna að sækja góð úrslit þar. En það er fátt ómögulegt í fótbolta.

Lyon 0 - 0 Barcelona

Liverpool 0 - 0 Bayern



Athugasemdir
banner
banner