Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. febrúar 2021 17:19
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Tindastóll og Dalvík/Reynir töpuðu heimaleikjum
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Úrslit og markaskorarar voru að berast úr þremur af leikjum dagsins í B-deild Lengjubikarsins.

Tindastóll tók á móti Magna og tapaði 0-1 þökk sé marki frá Alexander Ívani Bjarnasyni.

Dalvík/Reynir tók þá forystuna í grannaslag gegn Völsungi en gestirnir frá Húsavík jöfnuðu fyrir leikhlé og gerðu sigurmark í síðari hálfleik.

Að lokum rúllaði ÍR yfir Sindra eftir markalausan fyrri hálfleik. Gunnar Óli Björgvinsson skoraði tvennu og urðu lokatölur 4-0.

Tindastóll 0 - 1 Magni
0-1 Alexander Ívan Bjarnason ('68)

Dalvík/Reynir 1 - 2 Völsungur
1-0 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('32, sjálfsmark)
1-1 Daníel Már Hreiðarsson ('44)
1-2 Kifah Moussa Mourad ('70)

ÍR 4 - 0 Sindri
1-0 Emil Skorri Brynjólfsson ('47)
2-0 Gunnar Óli Björgvinsson ('63)
3-0 Arian Ari Morina ('82)
4-0 Gunnar Óli Björgvinsson ('92)
Athugasemdir
banner
banner
banner