Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2019 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna: Sara spilaði í tapi gegn Evrópumeisturunum
Sara Björk lék allan leikinn í liði Wolfsburg
Sara Björk lék allan leikinn í liði Wolfsburg
Mynd: Mirko Kappes
Lyon vann Wolfsburg 2-1 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en Sara Björg Gunnarsdóttir var í liði Wolfsburg.

Lyon er ríkjandi Evrópumeistari og hefur verið besta lið heims síðustu ár en það hefur unnið frönsku deildina samfleytt síðustu ellefu ár.

Wolfsburg tapaði einmitt fyrir Lyon í úrslitum á síðasta ári þar sem Sara meiddist eftir klukkutímaleik.

Í kvöld þurfti Wolfsburg aftur að sætta sig við tap en Lyon komst tveimur mörkum yfir áður en Nilla Fischer minnkaði muninn og kom Wolfsburg í ágæta stöðu fyrir síðari leikinn.

Sara Björk lék allan leikinn fyrir Wolfsburg. Þá vann Barcelona lið Lilleström, 3-0. Slavia Prag og Bayern München gerðu þá 1-1 jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner