Harry Kane er ekki pirraður út í landsliðsþjálfarann Gareth Southgate fyrir að taka hann af velli á föstudag.
Það kom þónokkrum á óvart er Kane var tekinn af velli í leik gegn Skotlandi sem lauk með markalausu jafntefli.
Kane hefur enn ekki skorað í mótinu en hann var tekinn af velli þegar 18 mínútur voru eftir.
„Nei. nei, nei. Ég var ekki meiddur. Ég taldi mig geta spilað áfram, mér leið vel fyrir þessa leiki ein og allt tímabilið," sagði Kane.
„Gareth á rétt á að gera þær breytingar sem hann telur vera best fyrir liðið. Þetta snýst um að vera upp á sitt besta á réttum tíma."
„Besti tíminn til að komast á hátindinn er í útsláttarkeppninni og svo vonandi byggja ofan á það."
Athugasemdir