Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orðaður við Liverpool - Tilbúinn að sitja út samninginn
Mynd: EPA
Liverpool hefur áhuga á að fá Marc Guehi, varnarmann Crystal Palace, til liðs við sig

Guehi á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Palace og er tilbúinn að sitja út samninginn ef ekkert verður úr félagaskiptum í sumar. Crystal Palace gæti því misst hann frítt á næsta ári.

Tottenham og Newcastle hafa einnig áhuga á honum. Hann vonast eflaust eftir því að fá góðan spiltíma til að eiga möguleika á sæti í enska landsliðinu fyrir HM 2026.

Liverpool er að sellja Jarell Quansah til Leverkusen fyrir 30 milljónir punda. Liverpool er hins vegar með traust miðvarðarpar í Virgil van Dijk og Ibrahima Konate.

Newcastle reyndi að fá hann síðasta sumar en verðmiðinn var of hár fyrir félagið. Þá gæti Tottenham verið í leit að miðverði þar sem Cristian Romero er orðaður við Atletico Madrid.
Athugasemdir