
Þróttur hefur endurheimt toppsætið í Bestu deild kvenna í bili að minnsta kosti eftir sigur á Fram í kvöld.
Þróttur náði forystunni strax í upphafi leiks þegar Jelena Tinna Kujundzic skoraði þegar boltinn datt fyrir fætur hennar eftir að Elaina Carmen La Macchi varði skot frá Þórdísi Elvu Ágústdóttir.
Þróttur náði forystunni strax í upphafi leiks þegar Jelena Tinna Kujundzic skoraði þegar boltinn datt fyrir fætur hennar eftir að Elaina Carmen La Macchi varði skot frá Þórdísi Elvu Ágústdóttir.
Mackenzie Smith var nálægt því að jafna metin fyrir Fram þegar hún átti skalla en boltinn rétt yfir markið.
Stuttu síðar skoraði Unnur Dóra Bergsdóttir og kom Þrótt í tveggja marka forystu. Þórdís Elva bætti síðan þriðja marki Þróttara þegar skammt var til loka leiksins. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir skoraði sárabóta mark fyrir Fram stuttu síðar.
Eins og fyrr segir fer Þróttur á toppinn með 25 stig, þremur stigum á undan Breiðabliki og FH. Fram er áfram í 5. sæti með 15 stig.
Tvö neðstu liðin, FHL og Tindastóll, áttust við í Fjarðabyggðarhöllinni. Lara Margrét Jónsdóttir kom gestunum yfir þegar hún skallaði boltann í netið.
Christa Björg Andrésdóttir jafnaði metin fyrir FHL snemma í seinni hálfleik. FHL fékk tækifæri til að komast yfir en Genevieve Jae Crenshaw gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu frá Calliste Brookshire.
Birgitta Rún Finnbogadóttir náði forystunni fyrir gestina þvert gegn gangi leiksins þegar tæpur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Hún bætti síðan við sínu öðru marki og þriðja marki TIndastóls áður en Elísa Bríet Björnsdóttir innsiglaði sigurinn.
Tindastóll stekkur upp í 7. sæti upp fyrir Val með 10 stig en FHL er áfram á botninum án stiga.
Fram 1 - 3 Þróttur R.
0-1 Jelena Tinna Kujundzic ('3 )
0-2 Unnur Dóra Bergsdóttir ('23 )
0-3 Þórdís Elva Ágústsdóttir ('81 )
1-3 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('84 )
Lestu um leikinn
FHL 1 - 4 Tindastóll
0-1 Lara Margrét Jónsdóttir ('30 )
1-1 Christa Björg Andrésdóttir ('50 )
1-2 Birgitta Rún Finnbogadóttir ('77 )
1-3 Birgitta Rún Finnbogadóttir ('87 )
1-4 Elísa Bríet Björnsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn
Besta-deild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Þróttur R. | 10 | 8 | 1 | 1 | 23 - 8 | +15 | 25 |
2. Breiðablik | 9 | 7 | 1 | 1 | 37 - 7 | +30 | 22 |
3. FH | 9 | 7 | 1 | 1 | 22 - 9 | +13 | 22 |
4. Þór/KA | 9 | 5 | 0 | 4 | 15 - 15 | 0 | 15 |
5. Fram | 10 | 5 | 0 | 5 | 14 - 21 | -7 | 15 |
6. Stjarnan | 9 | 4 | 0 | 5 | 11 - 19 | -8 | 12 |
7. Tindastóll | 10 | 3 | 1 | 6 | 15 - 20 | -5 | 10 |
8. Valur | 9 | 2 | 3 | 4 | 10 - 13 | -3 | 9 |
9. Víkingur R. | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 22 | -7 | 7 |
10. FHL | 10 | 0 | 0 | 10 | 4 - 32 | -28 | 0 |
Athugasemdir