Noni Madueke er undir smásjá nokkurra félaga og þar á meðal er Arsenal. Telegraph sagði frá þessu í gær.
Hinn 23 ára gamli Madueke spilaði 42 leiki með Chelsea á síðasta tímabili og átti hann stóran þátt í því að liðið vann Sambandsdeildina.
Hinn 23 ára gamli Madueke spilaði 42 leiki með Chelsea á síðasta tímabili og átti hann stóran þátt í því að liðið vann Sambandsdeildina.
Arsenal hefur áhuga á honum en það er ólíklegt að Chelsea muni selja hann þangað. Enzo Maresca, stjóri Chelsea, segir líka að hann líti á hann sem sinn leikmann fyrir komandi tímabil.
„Noni er okkar leikmaður," sagði Maresca á fréttamannafundi í dag.
„Það er hægt að lesa mikið af fréttum í dag en við lítum á Noni sem okkar leikmann fyrir komandi tímabil."
Athugasemdir