Arnaut Danjuma, leikmaður Villarreal, sagði sögu af því þegar hann fékk tækifæri á því að ganga til liðs við Feyenoord undir stjórn Arne Slot á sínum tíma.
Danjuma er 28 ára gamall Hollendingur og þetta var ekki í eina skiptið sem hann var í viðræðum við Feyenoord. Í þessu tilfelli ákvað hann að vera áfram hjá Villarreal.
Danjuma er 28 ára gamall Hollendingur og þetta var ekki í eina skiptið sem hann var í viðræðum við Feyenoord. Í þessu tilfelli ákvað hann að vera áfram hjá Villarreal.
„Ég átti mjög gott spjall við Arne Slot. Þetta var í eitt af mörgum skiptum sem við vorum í viðræðum. Í þetta sinn var ég svo heppinn að heimsækja Arne Slot og hlusta á hann í klukkutíma segja mér hversu lélegur ég væri, ég gleymi þessu aldrei," sagði Danjuma.
„Það var mjög sterkt. Það sannfærði mig um hversu góður þjálfari hann er. Hann kveikti á fartölvunni sinni og sýndi mér áætlunina og verkefnið sitt. Hann sýndi mér leikinn minn, hvað ég gerði vel en líka illa, hvað ég gat bætt. Það heillaði mig strax."
Athugasemdir