Florian Wirtz varð í gær dýrasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar Liverpool staðfesti kaupin á honum frá Leverkusen.
Liverpool gæti borgað allt að 116 milljónir punda fyrir hann en Enzo Fernandez var sá dýrasti en Chelsea borgaði Benfica 107 milljónir punda fyrir hann.
Liverpool gæti borgað allt að 116 milljónir punda fyrir hann en Enzo Fernandez var sá dýrasti en Chelsea borgaði Benfica 107 milljónir punda fyrir hann.
WIrtz sá þegar leikmenn Liverpool fögnuðu titlinum í miðborginni eftir tímabilið og hann er staðráðinn í að upplifa það með Liverpool.
„Ég var svo ánægður fyrir hönd leikmannana og fólksins hérna að upplifa þetta. Þetta var verðskuldað því þeir spiluðu ótrúlega vel. Það er bilað að sjá hversu margir voru mættir og hvernig andrúmsloftið var, það var gaman að sjá," sagði Wirtz.
„Ég er ekki kominn hingað til að fíflast, ég vil ná árangri og gefa stuðningsmönnunum það sem þeir eiga skilið. Auðvitað vil ég halda áfram að standa mig. Þetta gaf mér innblástur að afreka meira."
Jeremie Frimpong var liðsfélagi Wirtz hjá Leverkusen en þeir hafa nú sameinast hjá Liverpool.
„Hann er frábær leikmaður, góð manneskja. Góður fyrir hvaða klefa sem er og líka inn á vellinum, mikil gæði í sókn og vörn. Hann kom hingað fyrst og auðvitað vildi hann að ég kæmi líka. Ég tók hins vegar ákvörðun upp á mitt einsdæmi en kannski var smá hluti af því að hann kom sem sannfærði mig að lokum," sagði Wirtz en þeir sátu saman inn í klefa hjá Leverkusen og eru mjög nánir.
Athugasemdir