Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 11:38
Elvar Geir Magnússon
Framtíð Alberts enn í óvissu - Orðaður við fjögur félög
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: EPA
Ítalski blaðamaðurinn Nicolo Schira skrifaði færslu á samfélagsmiðlinum X um stöðu mála hjá íslenska landsliðsmanninum Alberti Guðmundssyni.

Albert lék á láni með Fiorentina frá Genoa á liðnu tímabili en meiðsli settu strik í reikninginn og hann náði ekki alveg að sýna sínar bestu hliðar.

Fiorentina er víst með forkaupsrétt á Alberti en sá réttur rennur út í næstu viku. Félagið þyrfti að greiða Genoa ákveðna upphæð samkvæmt samkomulagi þó sá réttur yrði ekki nýttur.

Gian Piero Gasperini, nýr stjóri Roma, ku vera aðdáandi Alberts og þá er sagt að Bologna leggi mikla áherslu á að reyna að fá hann. Einnig hefur Atalanta verið nefnt til sögunnar.

Líklegt verður að teljast að framtíð Alberts í boltanum skýrist betur í næstu viku en miðað við sögusagnir verður líklegast áfram í ítalska boltanum.


Athugasemdir
banner