Paris Saint Germain 0 - 1 Botafogo
0-1 Igor Jesus ('36)
0-1 Igor Jesus ('36)
Það voru gríðarlega óvænt úrslit í leik Paris Saint-Germain og Botafogo á HM félagsliða síðastliðna nótt. Evrópumeistararnir voru felldir af meisturunum frá Suður-Ameríku.
Botafogo, sem vann Copa Libertadores í fyrsta sinn á síðasta ári, tók forystuna í leiknum á 36. mínútu þegar Igor Jesus skoraði virkilega flott mark.
Igor Jesus, sem er 24 ára gamall, hefur núna skorað í báðum leikjum sínum á HM félagsliða.
Botafogo gerði gífurlega vel í seinni hálfleiknum og náði að landa frábærum 0-1 sigri. Botafogo er núna á toppi riðilsins með sex stig en svo koma PSG og Atletico bæði með þrjú stig. Seattle Sounders er án stiga en PSG mætir Seattle í lokaleik sínum í riðlinum á meðan Botafogo og Atletico eigast við.
Athugasemdir