Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City fékk milljón punda sekt
Man City fyrir leik á HM félagsliða.
Man City fyrir leik á HM félagsliða.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin hefur sektað Manchester City um rúmlega 1 milljón punda eftir að hafa ítrekað byrjað leiki seint á liðnu tímabili.

Þetta er annað árið í röð sem City fær slíka sekt en í fyrra sagði Pep Guardiola, stjóri City, að hann ætlaði sér að stytta hálfleiksræður sínar. Það tókst ekki alveg nægilega vel hjá honum.

Níu af leikjum Man City á síðasta tímabili byrjuðu seint, annað hvort þá í upphafi leiks eða eftir hálfleik. Stærsta töfin var á Manchester slagnum í desember þar sem seinni hálfleikurinn hófst tveimur mínútum og 24 sekúndum áður en áætlað var.

Enska úrvalsdeildin segir að City hafi beðist afsökunar og samþykkt brot sín. Þeir hafa 14 daga til að borga sektina sem er upp á 1,08 milljónir punda.

City er annars að bíða eftir niðurstöðu úr kærumáli gegn ensku úrvalsdeildinni sem snýr að brotum á fjárhagsreglum. Kærurnar eru alls 115 talsins í því máli.
Athugasemdir
banner