Rayan Cherki gekk til liðs við Manchester City frá Lyon fyrir 34 milljónir punda fyrr í þessum mánuði.
Franski miðillinn L'Equipe gerinir frá því að Man City og Lyon hafi gert samkomulag um að franska liðið mætti fá leikmann á láni út tímabilið í staðin.
Franski miðillinn L'Equipe gerinir frá því að Man City og Lyon hafi gert samkomulag um að franska liðið mætti fá leikmann á láni út tímabilið í staðin.
Samkvæmt heimildum L'Equipe er útlit fyrir að varnarmaðurinn Juma Bah fari til Lyon.
Franska félagið sýndi Oscar Bobb, Abdukodir Khusanov, James McAtee og Claudio Echeverri áhuga en City var ekki tilbúið að láta þá af hendi.
Bah er 19 ára gamall miðvörður sem gekk til liðs við Man City frá Valladolid í janúar. Hann fór um leið til Lens í Frakklandi á láni og spilaði tíu leiki fyrir liðið. Útlit er fyrir að hann sé aftur á leið til Frakklands.
Athugasemdir