Mamelodi Sundowns 3 - 4 Dortmund
1-0 Lucas Ribeiro ('11 )
1-1 Felix Nmecha ('16 )
1-2 Serhou Guirassy ('34 )
1-3 Jobe Bellingham ('45 )
1-4 Khuliso Mudau ('59 , sjálfsmark)
2-4 Iqraam Rayners ('62 )
3-4 Lebo Mothiba ('90 )
1-0 Lucas Ribeiro ('11 )
1-1 Felix Nmecha ('16 )
1-2 Serhou Guirassy ('34 )
1-3 Jobe Bellingham ('45 )
1-4 Khuliso Mudau ('59 , sjálfsmark)
2-4 Iqraam Rayners ('62 )
3-4 Lebo Mothiba ('90 )
Jobe Bellingham var að spila annan leik sinn fyrir Dortmund í dag eftir komuna frá Sunderland í sumar. Liðið mætti Mamelodi Sundowns frá Suður Afríku á HM félagsliða.
Mamelodi komst yfir þegar vörn Dortmund opnaðist upp á gátt og Lucas Ribeiro komst í gegn og skoraði örugglega. Stuttu síðar náði Dortmund að jafna.
Ronwen WIlliams í marki Mamelodi átti slæma sendingu sem fór beint á Felix Nmecha sem skoraði á opið markið. Serhou Guirassy kom Dortmund yfir þegar hann skoraði með skalla.
Undir lok fyrri hálfleiks bætti Bellingham við þriðja markinu með skoti úr teignum. Eftir klukkutíma leik var síðan Khulisoo Mudau fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan orðin ansi góð fyrir Dortmund.
Suður Afríkumennirnir gáfust hins vegar ekki upp og minnkuðu muninn stuttu síðar og Lebo Mothiba bætti þriðja marki liðsins við undir lokin en nær komust þeir ekki.
Dortmund er á toppnum með 4 stig eftir tvær umferðir. Mamelodi Sundowns í 2. sæti með þrjú stig. Fluminense er í 3. sæti með eitt stig en Ulsan frá Suður Kóreu á botninum án stiga en Fluminense og Ulsan mætast klukkan 22 í kvöld.
Athugasemdir