Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Kane á skotskónum er Bayern fór áfram
Mynd: EPA
Bayern er komið áfram í 16-liða úrslit á HM félagsliða eftir sigur á argentíska liðinu Boca Juniors í nótt.

Harry Kane kom liðinu yfir í fyrri hálfleik. Boca náði að jafna metin eftir rúmlega klukkutíma leik en Michael Olise skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.

Benfica og Boca munu berjast um að komast áfram úr C-riðlinum með Bayern.

LAFC frá Bandaríkjunum tapaði gegn Esperance frá Túnis í D-riðli. Youcef Blaili skoraði sigurmarkið en Denis Bouanga fékk gullið tækifæri til að jafna metin.

Hann tók vítaspyrnu þegar ellefu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en Bechir Ben Said, markvörður Esperance, varði spyrnuna.

Bayern 2 - 1 Boca Juniors
1-0 Harry Kane ('18 )
1-1 Miguel Merentiel ('66 )
2-1 Michael Olise ('84 )

LAFC 0 - 1 Esperance
0-1 Youcef Belaili ('71 )
0-1 Denis Bouanga ('90 Misnotað víti)
Athugasemdir
banner