Darwin Nunez, framherji Liverpool, er aðalskotmark Ítalíumeistara Napoli og mun félagið ræða áfram við enska félagið um félagaskiptin í næstu viku en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Framherjinn mun yfirgefa Liverpool í sumar, en Milan og félög í Sádi-Arabíu eru einnig með hann á óskalistanum.
Nunez, sem er 25 ára gamall, hefur spilað síðustu þrjú ár með Liverpool og ekki alveg náð að standast þær væntingar sem gerðar voru til hans.
Romano segir að hann sé efstur á óskalista Napoli sem dreymir um að fá hann og munu viðræður félagsins við Liverpool halda áfram í næstu viku.
Napoli mun þá komast að því hvað Nunez kemur til með að kosta, en talið er að LIverpool vilji að minnsta kosti helming af því sem það greiddi Benfica fyrir leikmanninn árið 2022.
Liverpool borgaði allt í allt 85 milljónir punda fyrir Nunez sem hefur skorað 40 mörk í öllum keppnum í 143 leikjum sínum með félaginu.
Athugasemdir