Chelsea skoðar Donnarumma - Newcastle endurvekur áhuga sinn á Ekitike - Douglas Luiz til West Ham?
Siggi Hall: Þeir brotnuðu og við gengum á lagið
Haddi eftir 5-0 tap: Svekktir fyrsta klukkutímann á leiðinni heim
Björn Daníel skaut á „gömlu kallana“ í Stúkunni - „Aldrei spilað á svona góðu grasi“
Kjartan Henry: Hlakka til að horfa á leikinn aftur
Gústi Gylfa: Eins og Þorgrímur Þráins sagði, varnarleikur vinnur leiki
„Örugglega það besta sem ég hef séð frá honum síðan ég kom"
Rúnar: Ætlum ekki að fara grenja yfir því að hafa tapað
Partí á Ísafirði í kvöld - „Vonandi sletta þeir aðeins úr klaufunum"
Alli Jói: Pabbi hringdi í mig og skammaði mig eftir leik
Fyrsta tap ÍR: „Helvíti gróft ef að eitt tap í tólf leikjum sitji þungt í mönnum"
Hemmi fékk góða afmælisgjöf: „Hún gat ekki verið betri"
Reynir Freyr: Gefur okkur mikið að fá Jón Daða
Gunnar Guðmunds: Við erum búnir að fá okkur alltof mörg mörk úr föstum leikatriðum
Árni Freyr: Andleysi leikmanna í hámarki
Jakob Gunnar spilaði sinn síðasta leik fyrir Þróttara: Vildi spila meira
Ingi Rafn: Fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Haraldur Hróðmars: Lífsnauðsynlegur sigur
Venni: Það gaf okkur blóð á tennurnar
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
   lau 21. júní 2025 17:38
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Arna Eiríks um EM hópinn: Ætla bara að vera hreinskilin, það var mjög svekkjandi
Kvenaboltinn
Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH
Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Eins og þú segir, svekkjandi,“ sagði Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, eftir 1-2 tap gegn Val í Kaplakrika í dag.


Lestu um leikinn: FH 1 -  2 Valur

„Mér svo sem fannst við ekki góðar í dag og við áttum ekkert endilega eitthvað mikið meira skilið út úr þessum leik heldur en þetta,“ hélt hún svo áfram.

„Mér fannst við eiga góða kafla í þessum leik en við áttum allt of mörg móment þar sem var bara slökkt á okkur og við erum ekki vanar því að vera að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum en fyrsta markið kemur eftir horn og það er bara svolítið eins og leikurinn var. Það slokknað á okkur í mikilvægum mómentum og það bara kostaði okkur í dag.“

Arna var orðuð við landsliðshópinn sem heldur á EM núna á næstu dögum en á endanum dró hún stutta stráið og landsliðsþjálfarinn ákvað að skilja hana eftir utan hóps. Aðspurð hvort það hafi ekki verið svekkjandi segir hún:

„Já, ég ætla bara að vera hreinskilin, það var mjög svekkjandi en við náttúrulega búum svakalega vel að hafsentum á Íslandi og það eru mjög góðir leikmenn í þessum hóp en ég get alveg viðurkennt það að ég var mjög svekkt yfir því að vera ekki í hópnum.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner