Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Vísir.is 
Myndband: Sæunn mjög ósátt við hártog markmanns Fram
Kvenaboltinn
Sæunn Björnsdóttir
Sæunn Björnsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur lagði Fram 3-1 í Bestu deild kvenna á föstudagskvöldið en það kom upp atvik í leiknum þar sem Elaina LaMacchia markvörður Fram reif í hárið á Sæunni Björnsdóttur leikmanni Þróttar.

Bríet Bragadóttir sá ekki atvikið og dæmdi brot á Sæunni þegar Elaina kýldi boltann í burtu og reif í Sæunni um leið.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  3 Þróttur R.

„Ég stóð bara hjá markverðinum að reyna að vera fyr­ir en hún var ekki sátt með mig fyr­ir fram­an sig og ákvað svo­leiðis að rífa mig niður á hár­inu," sagði Sæunn í samtali við mbl.is eftir leikinn.

„Mér finnst ótrú­legt að eng­inn af þess­um fjór­um dómur­um hafi séð þetta en fólk var kannski að skemmta sér yfir þessu í út­send­ing­unni. Það er kjána­legt að eng­inn hafi tekið eft­ir þessu. Þetta er alls ekki í lagi. Það er kjána­legt að þetta sé í boði og hafði eng­ar af­leiðing­ar."

Sjáðu atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner