Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 19:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Dr. Football 
Damir: Orri laug að pabba sínum daginn fyrir leik
Feðgarnir saman
Feðgarnir saman
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir Muminovic gekk aftur til liðs við Breiðabliks á dögunum eftir dvöl hjá DPMM frá Brúnei sem lék í singapúrsku deildinni.

Damir var gestur í hlaðvarpsþættinum Dr. Football en þar rifjaði hann upp einvígi Breiðabliks gegn FC Kaupmannahöfn frá Danmörku í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Árið 2023 var Damir hluti af liði Breiðabliks sem tryggði sér sæti í Sambandsdeildinni fyrst íslenskra liða. Liðið mætti FCK á leið sinni þangað. Í liði FCK var Orri Steinn Óskarsson og Damir var í miklum vandræðum með hann.

„Orri var 19 ára þegar ég spilaði á móti honum og hann gjörsamlega pakkaði mér saman á Parken, sama hvað maður ætlaði að gera. Maður var bara: Þetta er búið,“ sagði Damir.

Breiðablik tapaði heimaleiknum 2-0 og útileiknum 6-3 en Orri Steinn skoraði þrennu í Danmörku.

„Hann laug líka að Óskari fyrir leik að hann væri ekki að byrja. Óskar spurði hann daginn áður en svo rétt fyrir leik var hann í byrjunarliðinu,“ sagði Damir og hló.
Athugasemdir
banner