Miðjumaðurinn Martin Zubimendi er mættur til London til að ganga frá félagaskiptum sínum til Arsenal.
Hann mun í dag hitta forráðamenn Lundúnafélagsins og ganga frá smáatriðum í tengslum við félagaskiptin.
Hann mun í dag hitta forráðamenn Lundúnafélagsins og ganga frá smáatriðum í tengslum við félagaskiptin.
Í samningi Zubimendi er riftunarverð upp á 60 milljónir evra en Arsenal mun borga Sociedad aðeins hærri upphæð fyrir kappann til þess að geta borgað fyrir hann í nokkrum greiðslum í staðinn fyrir að borga alla upphæðina í einni greiðslu.
Zubimendi er djúpur miðjumaður sem var sterklega orðaður við Liverpool síðasta sumar. Hann endaði þá á því að vera áfram hjá Sociedad, en er núna að fara til Arsenal.
Hann er 26 ára gamall og hefur spilað 18 landsleiki fyrir Spánverja.
Athugasemdir