Niko Kovac, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, segir liðin frá Suður-Ameríku vera með stórt forskot á önnur lið á HM félagsliða.
HM félagsliða hefur boðið upp á nokkur óvænt úrslit til þessa en brasilísku liðin Botafogo, Flamengo, Fluminense og Palmeiras hafa öll verið að gera vel.
Botafogo vann Evrópumeistara Paris Saint-Germain, Flamengo vann Chelsea og þá hefur Palmeiras verið að ná í góð úrslit í A-riðli og ekki enn tapað leik.
Mikill hiti er í Bandaríkjunum, þar sem mótið er haldið, og er Kovac á því að þetta sé suður-amerísku liðunum í hag. Þrjú brasilísk lið eru á toppnum í riðlinum og er Flamengo komið áfram, og þá er Fluminense í öðru sæti í F-riðils.
„Suður-amerísku félögin eru með stórt forskot á HM félagsliða vegna hita. Það eru 32 gráður í skugga þannig ímyndaðu þér hvernig hitinn er í sólinni. Þú verður að bæta fimm gráðum við það.“
„Þetta er ótrúlegt erfitt og sérstaklega fyrir evrópsku leikmennina. Þetta er ekki afsökun heldur útskýring. Þetta er auðveldara fyrir liðin frá Suður-Ameríku því þau eru vön þessu hitastigi,“ sagði Kovac.
Athugasemdir