Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nálægt því að fá leikmann sem er að slá í gegn á HM félagsliða
Igor Jesus.
Igor Jesus.
Mynd: EPA
Nottingham Forest er nálægt því að kaupa leikmann sem hefur verið að slá í gegn á HM félagsliða.

Sá leikmaður heitir Igor Jesus og spilar með Botafogo í Brasilíu. Hann hefur verið maður leiksins í báðum leikjum Botafogo á HM hingað til en hann gerði sigurmarkið gegn PSG síðastliðna nótt.

Samkvæmt Telegraph er Forest nálægt því að kaupa Jesus og liðsfélaga hans, varnarmanninn Jair Cunha.

Kaupverðið fyrir þá báða er um 30 milljónir punda.

Þá eru fleiri góðar fréttir fyrir Forest því lykilmennirnir Neco Williams og Ola Aina eru að skrifa undir framlengingu á samningum sínum við félagið.
Athugasemdir
banner