Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Átti í veseni gegn Blikum en er nú orðaður við Barcelona
Roony Bardghji ræðir við Orra Stein Óskarsson.
Roony Bardghji ræðir við Orra Stein Óskarsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir frá því í dag að Barcelona hafi sett sig í samband við FC Kaupmannahöfn til að ræða um Roony Bardghji.

Barcelona er að fylgjast vel með Bardghji en er alls ekki eina félagið sem er að gera það. Porto gerði nýverið tilboð í hann.

Bardghji varð yngsti leikmaður í sögunni til að spila leik fyrir FC Kaupmannahöfn, stærsta félag Danmerkur, árið 2021. Hann var þá nýrorðinn 16 ára.

Hann hefur síðan þá spilað 82 leiki fyrir FCK og skorað í þeim 15 mörk.

Einn af þessum leikjum var gegn Breiðabliki í forkeppni Meistaradeildarinnar árið 2023. Tipsbladet í Danmörku gaf honum einn í einkunn fyrir frammistöðu hans í þeim leik.

Það eru miklar vonir bundnar við þennan leikmann fyrir framtíðina en FCK mun ekki ná að halda honum mikið lengur.

„Maður sá þetta strax þegar hann mætti á fyrstu æfinguna með U17, hann byrjaði að labba fram hjá mönnum og smyrja boltanum upp í vinkilinn. Maður sá að þetta var enginn eðlilegur gæi," sagði Orri Steinn Óskarsson, fyrrum liðsfélagi Bardghji, í viðtali við Ungstirnin stuttu eftir að Svíinn lék sinn fyrsta leik fyrir FCK.
Athugasemdir
banner
banner