Inter 2 - 1 Urawa Red Diamonds
0-1 Ryoma Watanabe ('11 )
1-1 Lautaro Martinez ('78 )
2-1 Valentin Carboni ('90 )
0-1 Ryoma Watanabe ('11 )
1-1 Lautaro Martinez ('78 )
2-1 Valentin Carboni ('90 )
Inter lenti í miklum vandræðum með japanska liðið Urawa Red Diamonds í 2. umferð HM félagsliða í kvöld.
Inter náði ekki að ógna marki Urawa í fyrri hálfleik og Japanarnir nýttu sér eina tækifærið sitt þegar Ryoma Watanabe kom boltanum í netið.
Lautaro Martinez náði að jafna metin fyrir Inter þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma en það var fyrsta skot Inter á markið. Markið kom eftir hornspyrnu.
Það stefndi allt í jafntefli en Valentin Carboni, sem hafði komið inn á sem varamaður, tryggði Inter stigin þrjú með marki þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Inter er á toppi E-riðils með 4 stig. River Plate er í 2. sæti með þrjú stig, Monterrey í 3. sæti með eitt stig og Urawa á botninum án stiga og er fallið úr leik. River Plate og Monterrey mætast klukkan 1 í nótt.
Athugasemdir