Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 20. júní 2025 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Quincy Promes framseldur til Hollands
Quincy Promes.
Quincy Promes.
Mynd: EPA
Vandræðagemsinn Quincy Promes er á leið til Hollands þar sem hann hefur verið framseldur þangað eftir að hann var handtekinn í Dúbaí á dögunum.

Promes er 32 ára gamall og þótti eitt sinn mjög spennandi fótboltamaður. Hann lék 50 landsleiki fyrir Holland frá 2014 til 2021 og skoraði í þeim sjö mörk.

Hann er hins vegar ekki eins og fótboltamenn eru flestir en árið 2022 var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að stinga frænda sinn og svo í kjölfarið í sex ára fangelsi fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl.

Promes mætti ekki fyrir réttarhöldin af ótta við það að þurfa að sitja í fangelsi og því hefur hann búið og spilað í Rússlandi síðustu ár, enda er enginn framsalssamningur á milli Hollands og Rússlands.

En hann var svo handtekinn þegar hann fór til Dúbaí og er núna á leið til Hollands þar sem hann þarf að dúsa í fangelsi í sjö og hálft ár. Hann getur í fyrsta lagi fengið reynslulausn árið 2030.
Athugasemdir
banner
banner