Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 15:53
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Langþráður sigur Vals - Blikar áfram á góðu róli
Kvenaboltinn
Helena Ósk (t.h) skoraði markið sem færði Val sigurinn
Helena Ósk (t.h) skoraði markið sem færði Val sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnheiður gerði fyrra mark Vals
Ragnheiður gerði fyrra mark Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blikar eru á siglingu
Blikar eru á siglingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bikarmeistarar Vals unnu langþráðan sigur í Bestu deild kvenna í dag er liðið lagði FH að velli, 2-1, í Kaplakrika. Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu á meðan sannfærandi 3-0 sigur á Stjörnunni í Garðabæ.

Valskonur hafa átt erfitt með að sækja sigra í byrjun tímabils og kom sá síðasti gegn Þór/KA í lok apríl.

Slæm taphrina liðsins hefur orðið til þess að liðið er nánast úr titilbaráttu, en á síðustu leiktíð töpuðu meistararnir aðeins tveimur leikjum allt tímabilið.

Valur mun elta allt tímabilið en það þarf að byrja einhvers staðar og í dag kom loksins sigurinn.

Bæði lið fengu dauðafæri í fyrri hálfleiknum. Elísa Lana Sigurjónsdóttir átti skot í þverslá snemma leiks og þá varði Sandra Sigurðardóttir vel frá Fanndísi Friðriksdóttur nokkrum mínútum síðar.

Í þeim síðari lokaði Tinna Brá Magnúsdóttir, markvörður Vals, vel þegar Thelma Karen Pálmadóttir var komin í góða stöðu og ekki liðu margar mínútur þangað til fyrsta markið kom.

FH-ingar áttu í mesta basli með að hreinsa frá eftir horn og datt boltinn fyrir Ragnheiði Þórunni Jónsdóttur sem setti boltann í netið.

Þremur mínútum síðar gat Elísa Lana jafnaði metin. Ída Marín Hermannsdóttir átti laglegan sprett úti hægra megin, kom boltanum inn á teiginn á Elísu sem hitti ekki rammann úr dauðafæri.

FH-ingar pressuðu og pressuðu í leit að jöfnunarmarki, en fengu undir lokin annað mark í andlitið. Helena Ósk Hálfdánardóttir gerði það á 83. mínútu með skoti af löngu færi í fjærhornið. Laglegt mark hjá henni og svöruðu FH-ingar um hæl.

Maya Lauren Hansen gerði vel hægra megin í teignum áður en hún kom boltanum á Ingibjörgu Magnúsdóttur sem vann einvígið við Bryndísi og minnkaði muninn.

Lengra komust FH-ingar ekki og langþráður sigur Vals staðreynd sem fer upp í 6. sæti Bestu deildarinnar með 12 stig, en FH er áfram í 3. sæti með 22 stig.

Þriðji sigur Breiðabliks í röð

Breiðablik sótti Stjörnuna heim í Garðabæ og vann þar öruggan 3-0 sigur.

Meistararnir tóku forystuna á 21. mínútu er Samantha Smith hamraði viðstöðulausu skoti í netið eftir að boltinn datt fyrir hana eftir aukaspyrnu.

Stjörnukonur gátu jafnað tveimur mínútum síðar er Birna Jóhannsdóttir slapp ein í gegn á móti Telmu Ívarsdóttur, en Telma las hana vel og kom hættunni frá.

Staðan 1-0 í hálfleik og kláruðu Blikar dæmið snemma í þeim síðari.

Birta Georgsdóttir þræddi Öglu Maríu Albertsdóttur í gegn á 58. mínútu en Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving varði frá henni, þó ekki lengra en aftur á Birtu sem skoraði.

Fimm mínútum síðar gerði Berglind Björg Þorvaldsdóttir út um leikinn. Andrea Rut Bjarnadóttir kom með fyrirgjöfina frá hægri á Berglindi sem stýrði boltanum í markið.

Undir lok leiks var Berglind nálægt öðru marki sínu í leiknum, en þversláin kom Stjörnukonum til bjargar.

Fleiri urðu mörkin ekki og voru það Blikar sem tóku öll stigin og fara á toppinn með 25 stig, eins og Þróttur, en meistararnir með betri markatölu. Stjarnan dettur niður um eitt sæti og niður í 7. sæti með 12 stig.

FH 1 - 2 Valur
0-1 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('60 )
0-2 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('83 )
1-2 Ingibjörg Magnúsdóttir ('84 )
Lestu um leikinn

Stjarnan 0 - 3 Breiðablik
0-1 Samantha Rose Smith ('21 )
0-2 Birta Georgsdóttir ('58 )
0-3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('63 )
Lestu um leikinn
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 10 8 1 1 40 - 7 +33 25
2.    Þróttur R. 10 8 1 1 23 - 8 +15 25
3.    FH 10 7 1 2 23 - 11 +12 22
4.    Þór/KA 10 6 0 4 19 - 16 +3 18
5.    Fram 10 5 0 5 14 - 21 -7 15
6.    Valur 10 3 3 4 12 - 14 -2 12
7.    Stjarnan 10 4 0 6 11 - 22 -11 12
8.    Tindastóll 10 3 1 6 15 - 20 -5 10
9.    Víkingur R. 10 2 1 7 16 - 26 -10 7
10.    FHL 10 0 0 10 4 - 32 -28 0
Athugasemdir
banner
banner