Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Tchaouna næstur inn hjá Burnley
Tchaouna
Tchaouna
Mynd: EPA
Sky á Ítalíu greinir frá því að Burnley sé að ganga frá kaupum á Loum Tchaouna frá Lazio.

Talið er líklegt að Burnley fái leikmanninn á lánssamningi með kaupmöguleika og að heildarverðið komi til með að nema um 15 milljónum evra.

Tchaouna er hægri kantmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Frakklands, þar sem hann á 17 mörk í 49 leikjum.

Tchaouna kom þó aðeins að þremur mörkum í 37 leikjum með Lazio á síðustu leiktíð og er félagið því reiðubúið til að selja kantmanninn, eftir að hafa keypt hann frá Salernitana í fyrrasumar.

Burnley er þegar búið að krækja í Marcus Edwards, Zian Flemming, Jaidon Anthony og Bashir Humphreys í sumar en þeir léku allir með liðinu á lánssamningi á síðustu leiktíð og reyndust lykilmenn í titilbaráttunni í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner