Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Snýr Palhinha til baka eftir aðeins eitt ár?
Joao Palhinha.
Joao Palhinha.
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha mun mögulega snúa aftur til Fulham í sumar.

Hinn 29 ára gamli Palhinha fór til Bayern München frá Fulham síðasta sumar eftir að hafa lengi daðrað við þýska stórveldið.

Hann var keyptur til Bayern fyrir rúmar 47 milljónir punda en átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili í Þýskalandi. Hann var mikið utan byrjunarliðsins.

Palhinha byrjaði aðeins sex leiki í þýsku úrvalsdeildinni og settu meiðsli líka strik í reikninginn.

Núna segir Daily Mail að Fulham sé að reyna að fá hann til baka og spurning hvort það gerist.
Athugasemdir
banner