Þór/KA 4 - 1 Víkingur R.
1-0 Agnes Birta Stefánsdóttir ('28 )
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir ('42 )
2-1 Amalía Árnadóttir ('46 )
3-1 Sonja Björg Sigurðardóttir ('62 )
4-1 Sandra María Jessen ('67 )
Lestu um leikinn
1-0 Agnes Birta Stefánsdóttir ('28 )
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir ('42 )
2-1 Amalía Árnadóttir ('46 )
3-1 Sonja Björg Sigurðardóttir ('62 )
4-1 Sandra María Jessen ('67 )
Lestu um leikinn
Þór/KA komst aftur á sigurbraut þegar liðið vann Víking í Boganum á Akureyri í kvöld.
Gestirnir byrjuðu leikinn vel en Freyja Stefánsdóttir komst í tvö góð færi snemma leiks en tókst ekki að setja boltann í netið. Sandra María Jessen fékk gott færi hinu megin en átti skalla yfir markið.
Heimakonur náðu fínum tökum á leiknum og uppskáru mark þegar Agnes Birta Stefánsdóttir var grimm inn á teignum eftir horn og kom Þór/KA yfir.
Víkingur jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks þegar Dagný Rún Pétursdóttir kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Lindu Líf Boama.
Þór/KA byrjaði seinni hálfleikinn af krafti en strax í upphafi átti Sandra María skot í slána og Amalía Árnadóttir náði frákastinu og skoraði og kom Þór/KA aftur yfir.
Sonja Björg Sigurðardóttir bætti þriðja markinu við þegar hún náði frákastinu eftir að Sigurborg varði skot frá Söndru Maríu. Það var síðan Sandra María sem innsiglaði sigur Þórs/KA þegar hún skallaði boltann í netið af mjög stuttu færi.
Þór/KA hafði tapað tveimur leikjum í röð í deildinni fyrir leik kvöldsins en eftir sigurinn er liðið áfram í 4. sæti nú með 18 stig, fjórum stigum á eftir FH sem er í 3. sæti. Víkingur er í 9. sæti með sjö stig.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |

