Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 20. júní 2025 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvaða númer fær Wirtz?
Florian Wirtz.
Florian Wirtz.
Mynd: EPA
Florian Wirtz er mættur til Liverpool og er búinn með fyrri hluta læknisskoðunar sinnar.

Hann kom til Liverpool í gærkvöldi og er að ganga frá félagaskiptum sínum til Englandsmeistarana.

Wirtz verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en Liverpool kaupir hann frá Bayer Leverkusen fyrir 116,5 milljónir punda.

Hjá breska ríkisútvarpinu hefur fólk verið að velta fyrir sér hvaða númer hann fær hjá Liverpool. Hann hefur síðustu tvö tímabil verið númer 10 hjá Leverkusen og það voru sögur um að hann hefði gert þá kröfu að fá það númer hjá Liverpool, en hann neitaði svo sjálfur fyrir það.

Alexis Mac Allister er með það númer hjá Liverpool og þá er Curtis Jones númer 17, sem er númer sem Wirtz hefur verið með í þýska landsliðinu.

Númer 27 er laust og er það líklegast eins og stendur, en Wirtz var með það númer hjá Leverkusen áður en hann fór í tíuna.

Þetta kemur allt saman í ljós á næstu dögum þegar Wirtz verður kynntur. Mögulega verður hann kynntur síðar í dag.
Athugasemdir
banner