
Það var dramatík þegar Leiknir fékk Njarðvík í heimsókn í Lengjudeildinni í kvöld.
Heimamenn voru með öll völd á vellinum í upphafi leiks en þetta snerist við seinni hluta fyrri hálfleiks og Njarðvíkingar náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Valdimar Jóhannsson kom boltanum í netið.
Heimamenn voru með öll völd á vellinum í upphafi leiks en þetta snerist við seinni hluta fyrri hálfleiks og Njarðvíkingar náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Valdimar Jóhannsson kom boltanum í netið.
Leiknismenn voru sterkir í seinni hálfleik og Róbert Quental kom boltanum í netið með höfðinu en markið dæmt af. Leiknir fékk aukaspyrnu þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Shkelzen Veseli tók spyrnuna og Dusan Brkovic mætti á fjær og jafnaði metin.
Njarðvík missti af tækifæri á því að komast á toppinn en liðið er með 17 stig í öðru sæti, stigi á eftir ÍR. Leiknir fór upp fyrir Fylki í 9. sæti með átta stig.
Fylkir fékk HK í heimsókn en Eyþór Aron Wöhler skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið þegar hann kom Fylki yfir.
Theodór Ingi Óskarsson skoraði fyrir Fylki þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik en markið dæmt af vegna rangstöðu. Fjórum mínútum síðar jafnaði Dagur Orri Garðarsson metin þegar hann skoraði með skalla og strax í kjölfarið var flautað til loka fyrri hálfleiks.
Eftir rúmlega klukkutíma leik slapp Dagur Orri Garðarsson eftir sendingu frá Jóhanni Þór Arnarssyni og kom HK yfir. Stuttu síðar varð HK manni færri þegar Haukur Leifur Eiríksson var rekinn af velli með rautt spjald.
Fylkismönnum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og sigur HK staðreynd. Eins og fyrr segir er Fylkir dottið niður í 10. sæti en HK er í 3. sæti með jafn mörg stig og Njarðvík.
Leiknir R. 1 - 1 Njarðvík
0-1 Valdimar Jóhannsson ('43 )
1-1 Dusan Brkovic ('88 )
Lestu um leikinn
Fylkir 1 - 2 HK
1-0 Eyþór Aron Wöhler ('29 )
1-1 Dagur Orri Garðarsson ('45 )
1-2 Dagur Orri Garðarsson ('65 )
Rautt spjald: Haukur Leifur Eiríksson, HK ('67)
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 8 | 5 | 3 | 0 | 12 - 4 | +8 | 18 |
2. Njarðvík | 9 | 4 | 5 | 0 | 21 - 9 | +12 | 17 |
3. HK | 9 | 5 | 2 | 2 | 17 - 9 | +8 | 17 |
4. Þróttur R. | 9 | 4 | 2 | 3 | 16 - 15 | +1 | 14 |
5. Keflavík | 7 | 3 | 2 | 2 | 15 - 9 | +6 | 11 |
6. Grindavík | 7 | 3 | 2 | 2 | 20 - 15 | +5 | 11 |
7. Þór | 8 | 3 | 2 | 3 | 18 - 17 | +1 | 11 |
8. Völsungur | 8 | 3 | 1 | 4 | 11 - 17 | -6 | 10 |
9. Leiknir R. | 9 | 2 | 2 | 5 | 10 - 22 | -12 | 8 |
10. Fylkir | 9 | 1 | 4 | 4 | 10 - 14 | -4 | 7 |
11. Fjölnir | 9 | 1 | 3 | 5 | 11 - 19 | -8 | 6 |
12. Selfoss | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 17 | -11 | 6 |
Athugasemdir