Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Juventus blandar sér í baráttuna um Sancho
Mynd: EPA
Juventus hefur sett sig í samband við Man Utd en ítalska félagið skoðar þann möguleika að næla í Jadon Sancho frá United.

Napoli hefur einnig áhuga á Sancho sem á eitt ár eftir af samningi sínum en hann mun þurfa að taka á sig launalækkun ætli hann sér til Napoli.

Juventus hefur einnig haft samband við umboðsmann Sancho til að ræða samningamálin.

United vill frekar selja Sancho en að lána hann en hann var á láni hjá Chelsea á síðustu leiktíð. Hann er sagður metinn á í kringum 25 milljónir punda.
Athugasemdir
banner