Antoine Semenyo, leikmaður Bournemouth, en Man Utd hefur sýnt honum áhuga.
The Athletic segir frá því að Tottenham hafi spurst fyrir um hann en er ekki tilbúið að fara í viðræður að svo stöddu.
Semenyo er sagður spenntur fyrir því að fara til Tottenham en félagið er ekki tilbúið að hefja viðræður þar sem Bournemouth vill fá háa upphæð fyrir hann.
Bournemouth hefur sett 65 milljón punda verðmiða á þennan 25 ára gamla vængmann. Semenyo hefur skorað 21 mark í 78 leikjum undanfarin tvö tímabil fyrir Bournemouth.
Athugasemdir