Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 12:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona lítur starfsteymi KSÍ út fyrir EM - Fleiri en leikmennirnir
Icelandair
EM KVK 2025
Landsliðsþjálfararnir, Ásmundur Haraldsson og Þorsteinn Halldórsson.
Landsliðsþjálfararnir, Ásmundur Haraldsson og Þorsteinn Halldórsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Arnar Laufdal sér um samfélagsmiðlana.
Arnar Laufdal sér um samfélagsmiðlana.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stelpurnar okkar eru á leið á Evrópumótið í Sviss í næsta mánuði. Framundan er virkilega spennandi mót þar sem möguleikarnir eru góðir.

Stórt teymi mun fylgja landsliðinu á EM eins og venjan er. Á Vísi er talið upp hvaða fólk verður í teyminu í kringum liðið. Það eru 24 starfsmenn á leiðinni út en 23 leikmenn í hópnum.

Teymið í kringum landsliðið á EM:
Þorsteinn H. Halldórsson, aðalþjálfari
Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari
Ólafur Pétursson, markmannsþjálfari
Davíð Snorri Jónasson, njósnari
Þórður Þórðarson, njósnari
Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir, læknir
Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari
Ásta Árnadóttir, sjúkraþjálfari
Tinna Mark Antonsdóttir, sjúkraþjálfari
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, styrktarþjálfari
Lára Hafliðadóttir, aðstoðarstyrktarþjálfari og greinandi
Thomas Goodall, tæknilegur greinandi
Grímur Gunnarsson, sálfræðingur
Hafsteinn Steinsson, liðsstjóri
Kristbjörg Helga Ingadóttir, búningastjóri
Laufey Ólafsdóttir, búningastjóri
Ómar Smárason, yfirfjölmiðlafulltrúi
Jóhann Ólafur Sigurðsson, fjölmiðlafulltrúi
Arnar Laufdal Arnarsson, samfélagsmiðlar
Davíð Ernir Kolbeins, miðamál
Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ
Óskar Örn Guðbrandsson, verkefnastjóri
Vilhjálmur Gíslason, öryggisstjóri
Ylfa Helgadóttir, kokkur
Athugasemdir