Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
banner
   lau 21. júní 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Þarf að taka á sig launalækkun til að fara til Milan
Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic er á förum frá Juventus í sumar en hann gæti þurft að taka á sig launalækkun til þess að komast frá ítalska félaginu.

Ekki er langt síðan stærstu liðin í Evrópu vildu fá Vlahovic í sínar raðir en möguleikarnir eru færri í dag.

Vlahovic, sem er 25 ára gamall, er ekki í myndinni hjá Igor Tudor, þjálfara Juventus, en það er enn möguleiki á að hann verði áfram á Ítalíu.

Sportmediaset segir Milan hafa mikinn áhuga á honum og muni gera hann að aðalskotmarki sínu ef félaginu tekst ekki að fá Darwin Nunez frá Liverpool.

Það er þó ein stór hindrun og það er launapakki Vlahovic sem þénar nú um 12 milljónir evra í árslaun.

Hann yrði að taka á sig fimm milljóna evra launalækkun til að fara til Milan.

Ef hann samþykkir það ekki þá eru enn möguleikar í boði í Sádi-Arabíu og Tyrklandi, en Serbinn vill heldur spila á háu stigi í Evrópuboltanum.
Athugasemdir
banner
banner