Brynjar Björn Gunnarsson var á dögunum ilkynntur sem sérstakur meðþjálfari Víkings fyrir komandi leiki liðsins í Sambandsdeildinni. Brynjar á svo líka að vera til taks í Bestu deildinni en hann var ekki á skýrslu gegn KR fyrr í vikunni.
Það er krafa hjá UEFA að félög séu með aðalþjálfara sem hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðuna en enginn í teymi Víkings var með þá gráðu. Sölvi Geir Ottesen, aðalþjálfari Víkings, klárar þá gráðu á næsta ári.

„Það kemur mér ekkert rosalega á óvart," sagði Sæbjörn Steinke í Innkastinu þegar rætt var um það að Brynjar Björn hefði ekki verið á skýrslu.
„Hann er fenginn sem Evrópuþjálfari og er kannski með í einhverjum undirbúningi en ég held að hann sé svolítið til sýnis í Evrópuleikjunum."
Það verður áhugavert að sjá hvernig hlutverk Brynjars muni þróast þegar hann kemur inn í þetta.
„Ég held að hann komi að undirbúningi en ég held að hlutverk hans í deildarleikjum verði ekki rosalega stórt," sagði Sæbjörn.
Athugasemdir