Jonathan David er einn heitasti bitinn á markaðnum í sumar. Sóknarmaðurinn er án félags eftir að samningur hans við Lille í Frakklandi rann út.
Samkvæmt fjölmiðlum í Tyrklandi er leikmaðurinn búinn að samþykkja tilboð frá Fenerbahche, einu stærsta félaginu þar í landi.
Samkvæmt fjölmiðlum í Tyrklandi er leikmaðurinn búinn að samþykkja tilboð frá Fenerbahche, einu stærsta félaginu þar í landi.
Fenerbahche gerði honum stórt tilboð þar sem hann mun fá 45 milljónir evra fyrir þrjú ár.
David, sem er 25 ára gamall, hefur einnig verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni.
Stjóri Fenerbahche er sjálfur Jose Mourinho.
Athugasemdir