Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 20. júní 2025 07:15
Elvar Geir Magnússon
Ekki talað við Mudryk síðan í maí
Enzo Maresca, stjóri Chelsea.
Enzo Maresca, stjóri Chelsea.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enzo Maresca, stjóri Chelsea, segist ekki hafa rætt við úkraínska landsliðsmanninn Mykhailo Mudryk síðan enska fótboltasambandið tilkynnti á miðvikudag að hann hefði formlega verið ákærður fyrir brot á lyfjareglum.

Mudryk gæti fengið fjögurra ára bann eft hann er fundinn sekur um að hafa tekið bannað efni.

Mudryk hefur ekkert spilað með Chelsea eftir að málið kom upp í nóvember síðastliðnum. Það var lyfið lyfið meldonium sem felldi Mudryk en hann neitar að hafa tekið það visvítandi.

Maresca segist enn treysta Mudryk og að hann ætli að heyra í honum hljóðið bráðlega.

„Ég talaði við Misha í Póllandi þegar við vorum að fara að spila úrslitaleikinn í Sambandsdeildinni. Ég hef ekki talað við hann síðan. Hann er leikmaður Chelsea og ég treysti öllum leikmönnum Chelsea," segir Maresca.
Athugasemdir
banner