Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Brentford að selja leikmann til Tyrklands
Mynd: Brentford
Tyrkneski fjölmiðillinn Fanatik greinir frá því að Besiktas sé að ganga frá kaupum á Igor Thiago, framherja Brentford.

Thiago er 23 ára framherji sem var keyptur til Brentford í fyrrasumar. Hann átti óheppilegt fyrsta ár á Englandi þar sem hann kom aðeins við sögu í átta leikjum vegna slæmra meiðsla á liðþófa.

Thiago átti að fylla í skarð Ivan Toney sem skipti yfir til Sádi-Arabíu. Þau áform misheppnuðust en sóknarleikmennirnir Bryan Mbeumo og Yoane Wissa stigu þess í stað upp og skoruðu mörkin fyrir Brentford, ásamt Kevin Schade. Daninn knái Mikkel Damsgaard átti flestar stoðsendingar.

Brentford borgaði um 30 milljónir punda til að kaupa Thiago frá Club Brugge í fyrra. Óljóst er hvaða verð Besiktas mun greiða fyrir leikmanninn og hvort hann verði lánaður til félagsins eða seldur.
Athugasemdir
banner
banner