Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. júlí 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfest að Ronaldo verður ekki ákærður fyrir nauðgun
Mynd: Getty Images
Greint var frá því í júníbyrjun að nauðgunarásaknir á hendur Ronaldo yrðu felldar niður.

Kathryn Mayorga er sögð hafa samþykkt árið 2010 að bera aldrei upp ásakanir gegn Ronaldo en að hennar sögn nauðgaði Ronaldo henni á hótelherbergi í Las Vegas árið 2009. Hún á að hafa fengið 375 þúsund dollara fyrir að saka Ronaldo ekki um glæpinn.

Hún gerði það ekki fyrstu átta árin eftir greiðsluna en árið 2018 snerist henni hugur og höfðaði mál gegn Ronaldo.

Í kvöld var svo staðfest með tilkynningu frá saksóknurum í Las Vegas að Ronaldo yrði ekki ákærður vegna málsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner