Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 23. október 2020 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Jafnt í Stuttgart - Mangala skoraði eftir 16 sekúndur
Orel Mangala fagnar marki sínu sem kom eftir aðeins sextán sexúndur
Orel Mangala fagnar marki sínu sem kom eftir aðeins sextán sexúndur
Mynd: Getty Images
Stuttgart 1 - 1 Koln
1-0 Orel Mangala ('1 )
1-1 Sebastian Andersson ('23 , víti)

Stuttgart og Köln gerðu 1-1 jafntefli í fimmtu umferð þýsku deildarinnar í kvöld en bæði mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum.

Belgíski miðjumaðurinn Orel Mangala kom Stuttgart yfir eftir aðeins 16 sekúndur og er það fljótasta mark þýsku deildarinnar á þessu tímabili.

Gestirnir jöfnuðu á 23. mínútu með marki frá sænska leikmanninum Sebastian Andersson.

Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum og er Stuttgart í 4. sæti eftir leikinn með 8 stig en Köln í 16. sæti með 2 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner